Íslenskar konur í Þýskalandi

Við búum í NRW og Hollandi: Viersen, Recklinghausen, Coesfeld, Bad-Munstereifel, Berg.-Gladbach, Höxter og örugglega víðar.....

sunnudagur, apríl 10, 2005

Velkomnar

Komið allar sælar og blessaðar.
Það var ákveðið í saumó hjá Helgu að búa til hópblogg fyrir íslenska saumaklúbbinn í mið-Þýskalandi, nær reyndar líka til Hollands. Þannig var að talið barst að bloggi og af hverju fólk er með blogg. Fengum reyndar ekki neitt gott svar við því en komum með hugmynd um að byrja bara sjálfar með blogg. Þá er hægt að skrifa hvenær saumó er og eitt og annað. Nú er bara að taka af skarið og byrja að skrifa. Alveg sama hvað það er. Ég ætla til dæmis að byrja á því að birta einn brandara sem ég fékk í tölvupósti:

Stelpa á leikskólaaldri spurði pabba sinn við kvöldverðarborðið nýlega:

,,Var ég búin til í glasi, ættleidd eða rídd?"

Ort var í hennar orðstað:

Úr hvaða efni er ég smídd,
af íslensku holdi eða þýdd?
Ég vita það vil
því víst er ég til.
Er ég ættleidd, úr glasi eða rídd?

Spurningu barnins svarar pabbinn á þessa leið:

Úr ágætis efn´ ertu snídd
og kostunum bestu ertu prýdd.
En eitt máttu vita
ég vann mér til hita,
því á gamaldags hátt varstu rídd

(Limrur úr blaði vesturlands "Skessuhorns")

Inga Björk ætlar að vera með næsta saumó, sunnudaginn 1.maí. Við mætum auðvitað tilbúnar í skrúðgöngu eins og sönnum Íslendingi mætir ekki satt?? Nei bara grín, híhíhí.....

3 Comments:

  • At 9:00 e.h., Blogger Helga said…

    Hæ hæ, ég þori ekki annað en að spyrja, ætti ég að setja mynd sem Nína mín tók af okkur í dag inn á bloggið?

     
  • At 9:44 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ og takk fyrir áðan
    Blessuð vertu settu bara inn mynd, við erum nú svo sætar :)
    Ég var um hálftíma á leiðinni heim svo nú er bara að hittast oftar ;)
    Þarf ég núna að gera svona "konto anlegen" með því að fylgja því sem þú sendir í pósti?
    Sjáumst, Inga B.

     
  • At 9:54 e.h., Blogger Helga said…

    Já til að skrifa sjálf inn á aðalplaggið Inga, koma svooooo

    Já blessuð bara kíkja í kaffi, daglega, hvað segiru um það????

     

Skrifa ummæli

<< Home