Íslenskar konur í Þýskalandi

Við búum í NRW og Hollandi: Viersen, Recklinghausen, Coesfeld, Bad-Munstereifel, Berg.-Gladbach, Höxter og örugglega víðar.....

sunnudagur, desember 18, 2005

Gleðilega jólahátíð kæru vinkonur

Sælar og blessaðar

Það varð því miður lítið úr laufabrauðinu hjá okkur. Við Inga Björk vorum samt duglegar og njótum góðs af því í kring um jólin. Kannski á næsta ári.

Mig langaði bara að óska ykkur gleðilegrar jólahátíðar og farsælt komandi ár. Það er búið að vera gaman að hitta ykkur á árinu sem nú senn er að líða. Hlakka til að hittast hressar og kátar á nýju ári. Hafið það ávallt sem best og njótið jólanna. Þessi tími er svo fljótur að líða.

Við Nína ætlum í stutta Íslandsferð í byrjun janúar. Við verðum sennilega í Brussel yfir áramótin.

Jólakveðja
Helga Atladóttir og fjölskylda

þriðjudagur, desember 06, 2005


Laufabraud Posted by Picasa

Laufabrauðsgerð

Jæja þá fer aldeilis að styttast í það. Við ætlum að hittast heima hjá mér á laugardaginn og baka saman laufabrauð, fletja út, skera út og steikja. Það væri gaman að fá að vita hverjar komast og með hverjum og hve margar kökur þeir vilja sem vilja kökur.

Ég held að við ættum að halda okkur við kl.14 en vinsamlegast mætið tímanlega. Fyrstir koma, fyrstir fá!!! Nei smá grín.

Alley, gætir þú komið með diskinn sem þú spilaðir fyrir okkur í brunchinu hjá þér í febr. á þessu ári?

Ég hlakka til að sjá ykkur og vona eftir gífulegri þátttöku.

miðvikudagur, nóvember 30, 2005

Au-Pair óskast

Til Osnabruck til fjögurra manna fjölskyldu til að gæta barnanna, 2 ára og 10 ára fyrir og eftir leikskóla og til að elda mat í hádeginu þegar strákurinn kemur heim úr skólanum. Etv létt heimilisverk eins og að strauja.

Ef þið þekkið einhverja þá vinsamlega hafið samband við mig í síma 0049-2541-971295 eða í gegnum hotmailið mitt helgaatla@hotmail.com

Kærar þakkir

sunnudagur, nóvember 06, 2005

Íslenskir dagar í Köln

Segir Inga Martha, en spennandi ekki satt.
Ég væri svo hjartanlega til í að fara, með barn og mann ef út í það er farið. Allt opið. Er meira segja fríhelgi hjá mér. Inga B. var að stinga upp á að fara með lest, það er örugglega ekki svo vitlaust svo ekki sé talað um helgar tilboðin hjá bahn, nrw ticket eða hvað þetta heitir nú allt saman, fyrir hópa og alles. Við kynnum okkur þetta, höldum þessu amk opnu.

Í sambandi við laufabrauðsgerð var ég að stinga upp á 10 des, hef nú dræm svör fengið???

Bestu kveðjur
Helga

miðvikudagur, október 26, 2005

Inga Björk að skrifa með gelpennunum fínu


Posted by Picasa

Á fullu í jólakortagerð


Posted by Picasa

Saumaklúbbur hjá Bjarnhildi sl. sunnudag


Inga Björk, Þórunn, Inga Martha og Bjarnhildur Posted by Picasa

miðvikudagur, september 21, 2005

Lágmolla

Hvaða, hvaða.....

Jæja best að hrista aðeins upp í þessu hjá okkur.

Stefnt er að því að það verði saumaklúbbur hjá Bjarnhildi í október þar sem tekið verður til við jólakortagerð.... Já hvorki meira né minna. Ég hlakka mikið til. Það má endilega koma með uppástungur fyrir kortagerð og svo mun ein redda efni og hinar borga í efniskostað. Gaman gaman, ég er svo spennt fyrir svona löguðu og hlakka mikið til.

Svo er það á dagskránni að hittast hjá mér í november og fara í laufabrauðsgerð. Jahérna, bara kraftur í konunum. Ég á uppskrift og hef einu sinni bakað laufabrauð. Ég á laufabrauðskefli (fékk það í jólagjöf í fyrra) þannig að það er allt til alls.

Þetta er planið fyrir næstu fundi, það væri gaman að fá smá líf í þessa síðu og heyra frá ykkur dömur mínar.

Nýtt hjá mér er það að ég er búin að segja upp vinnunni. Já ákvað það með mínum ektamanni að láta ekki bjóða mér svona framkomu lengur. Nú er bara spurning hvort maður herði sultarólina eða treysti sér í aðra vinnu. Vinir og vandamenn segja komið bara heim til Íslands.... en svo fljótt verður það ekki, þótt það togi vitanlega í mig.

Bið ykkur vel að lifa, þar til næst,
ykkar
Helga

þriðjudagur, ágúst 30, 2005

Saumaklúbbur

Hæ hæ og velkomnar heim úr fríinu þær sem voru í burtu. Hvernig var það með saumó? Eru einhverjar dagsetningar í boði svo ég verði nú smá ýtin? Ég hlakka til að hitta ykkur eftir langa pásu.

Hvaða ansnalegu komment eru þetta, við bara látum eins og við sjáum þetta ekki. Hallærislegt finnst mér.

Bíð spennt eftir fregnum af saumó,
ykkar Helga