Íslenskar konur í Þýskalandi

Við búum í NRW og Hollandi: Viersen, Recklinghausen, Coesfeld, Bad-Munstereifel, Berg.-Gladbach, Höxter og örugglega víðar.....

sunnudagur, júlí 17, 2005

Tjaldleit

Hæ hæ Stelpur,

við fjölskyldan erum búin að vera mikið að spá og spekulera í að kaupa okkur nýtt tjald. Þannig að næstu daga verður stefnan tekin á overlingen í Hollandi eða hvað það heitir til að kíkja á nokkur tjöld. Ég hef nú ekki verið mikil vinkona tjaldferða en það er auðvitað yndislegt hef ég látið segja mér á norðurlöndum og hér í Evrópu í tjaldferðum. Þannig að nú er bara að láta slag standa. Læt ykkur vita hvernig það fer. Það væri gaman ef einhver ykkar sem vit hefur á tjaldmálum ráðleggi mér hvað mikilvægt er og hvað ekki. Takk fyrir það fyrirfram.....

Annars erum við hjónakornin bara ein heima og höfum það sallafínt. Nína er á Íslandi og á eftir viku á rúmri tveggjavikna dvöl sinni. Við fórum í hjólreiðatúr í dag til Gescher í Glockenmuseum sem var mjög skemmtilegt, samtals um þrjátíu kílómetrar.

Bið að heilsa ykkur í bili kæru vinkonur og hafið það áfram gott í fríinu