Íslenskar konur í Þýskalandi

Við búum í NRW og Hollandi: Viersen, Recklinghausen, Coesfeld, Bad-Munstereifel, Berg.-Gladbach, Höxter og örugglega víðar.....

sunnudagur, desember 18, 2005

Gleðilega jólahátíð kæru vinkonur

Sælar og blessaðar

Það varð því miður lítið úr laufabrauðinu hjá okkur. Við Inga Björk vorum samt duglegar og njótum góðs af því í kring um jólin. Kannski á næsta ári.

Mig langaði bara að óska ykkur gleðilegrar jólahátíðar og farsælt komandi ár. Það er búið að vera gaman að hitta ykkur á árinu sem nú senn er að líða. Hlakka til að hittast hressar og kátar á nýju ári. Hafið það ávallt sem best og njótið jólanna. Þessi tími er svo fljótur að líða.

Við Nína ætlum í stutta Íslandsferð í byrjun janúar. Við verðum sennilega í Brussel yfir áramótin.

Jólakveðja
Helga Atladóttir og fjölskylda

þriðjudagur, desember 06, 2005


Laufabraud Posted by Picasa

Laufabrauðsgerð

Jæja þá fer aldeilis að styttast í það. Við ætlum að hittast heima hjá mér á laugardaginn og baka saman laufabrauð, fletja út, skera út og steikja. Það væri gaman að fá að vita hverjar komast og með hverjum og hve margar kökur þeir vilja sem vilja kökur.

Ég held að við ættum að halda okkur við kl.14 en vinsamlegast mætið tímanlega. Fyrstir koma, fyrstir fá!!! Nei smá grín.

Alley, gætir þú komið með diskinn sem þú spilaðir fyrir okkur í brunchinu hjá þér í febr. á þessu ári?

Ég hlakka til að sjá ykkur og vona eftir gífulegri þátttöku.