Íslenskar konur í Þýskalandi

Við búum í NRW og Hollandi: Viersen, Recklinghausen, Coesfeld, Bad-Munstereifel, Berg.-Gladbach, Höxter og örugglega víðar.....

mánudagur, apríl 25, 2005

Komin heim

Hæ hæ, ég er komin heim aftur. Var í nokkra daga á Íslandi í þessu líka blíðviðri. Alveg frábært veður heima. Það var svaka stuð á reunion og gaman að hitta þessa krakka aftur. Svo er líka gott að koma heim.

Ég stefni á að mæta, á að vinna þessa helgi en ég verð vonandi þá á morgunvakt. Inga ég var að spá í að mæta með mann og barn, var það ekki í lagi?
Hlakka til að sjá ykkur, bestu kveðjur
Helga

miðvikudagur, apríl 13, 2005

Hugleiðing

Ég er komin í sumarfrí úr vinnunni. Ég hef það gott, læt tímann bara líða áfram án þess að vera að taka mér mikið fyrir hendur. Veðrið er að batna og það er gott. Vonandi helst hann þurr á laugardaginn en þá á Nína dóttir mín tíu ára afmæli. Hún er búin að bjóða 8 stelpum í afmæli og ætlar að hafa ratleik. Eftir ratleikinn verður svo diskó í stofunni hjá okkur. Ætli við bökum ekki eitthvað smáræði, kanilsnúða og köku. Seinna um daginn verður svo boðið upp á pylsur, ég veit ekki hvað við eigum að hafa við Bratwurst fyrir tíu ára stelpur. Borða þær kartöflusalat? Er kannski sniðugra að vera með franskar? Bara allt svo óhollt, sykur og fita og svo nammi og snakk. Krakkarnir fara alveg í sjokk. Svo kók ofaná allt saman!!! Kannski verður maður bara að sleppa því að hugsa svona á svona dögum. Þið haldið örugglega að ég sé að djóka! En ég er það ekki! BEst að hætta núna áður en ég geng of langt!!! Ætla að ryksuga og fara svo að versla aðeins.

Eitt sem mig langar að minnast á. Ég vil endilega bæta inn áhugaverðum linkum. Látið mig vita um það sem þið kíkið á og við setjum það inn hér til hliðar. Sendið bara tölvupóst eða í komment hér á síðunni.

Bestu kveðjur,
Helga

sunnudagur, apríl 10, 2005

Velkomnar

Komið allar sælar og blessaðar.
Það var ákveðið í saumó hjá Helgu að búa til hópblogg fyrir íslenska saumaklúbbinn í mið-Þýskalandi, nær reyndar líka til Hollands. Þannig var að talið barst að bloggi og af hverju fólk er með blogg. Fengum reyndar ekki neitt gott svar við því en komum með hugmynd um að byrja bara sjálfar með blogg. Þá er hægt að skrifa hvenær saumó er og eitt og annað. Nú er bara að taka af skarið og byrja að skrifa. Alveg sama hvað það er. Ég ætla til dæmis að byrja á því að birta einn brandara sem ég fékk í tölvupósti:

Stelpa á leikskólaaldri spurði pabba sinn við kvöldverðarborðið nýlega:

,,Var ég búin til í glasi, ættleidd eða rídd?"

Ort var í hennar orðstað:

Úr hvaða efni er ég smídd,
af íslensku holdi eða þýdd?
Ég vita það vil
því víst er ég til.
Er ég ættleidd, úr glasi eða rídd?

Spurningu barnins svarar pabbinn á þessa leið:

Úr ágætis efn´ ertu snídd
og kostunum bestu ertu prýdd.
En eitt máttu vita
ég vann mér til hita,
því á gamaldags hátt varstu rídd

(Limrur úr blaði vesturlands "Skessuhorns")

Inga Björk ætlar að vera með næsta saumó, sunnudaginn 1.maí. Við mætum auðvitað tilbúnar í skrúðgöngu eins og sönnum Íslendingi mætir ekki satt?? Nei bara grín, híhíhí.....