Íslenskar konur í Þýskalandi

Við búum í NRW og Hollandi: Viersen, Recklinghausen, Coesfeld, Bad-Munstereifel, Berg.-Gladbach, Höxter og örugglega víðar.....

mánudagur, maí 02, 2005

Takk fyrir síðast

Blessaðar dömur, það var nú meiri mannfjöldinn hjá henni Ingu B. í gær. Gaman að hitta alla þessa húsvíkinga og fjölskyldu Ingu B. hann Julian, Henrik og Seydi. Takk fyrir okkur, ég mætti líka með den hele familien, Alex minn og hana Nínu þannig að við vorum bara alveg hellingur af fólki þegar mest var. Mér finnst svo gaman að hitta ykkur og vera með ykkur í saumaklúbb. Það verður frekar langt þar til næst en við stefnum á Svölu sumarhátíð og vonandi geta sem flestir mætt þá.

Frábært hvað veðrið er orðið gott. Verst að það verður ekki lengi svona en það er sama, síðan nítjánhundruð sjötíu og eitthvað hefur ekki verið svona heitt á 1.maí. Frábært.....

Inga þú setur svo inn myndirnar....

Nína er að fara í reiðtíma og best að leggjast aðeins á sófann áður en við leggjum af stað, hehe...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home