Íslenskar konur í Þýskalandi

Við búum í NRW og Hollandi: Viersen, Recklinghausen, Coesfeld, Bad-Munstereifel, Berg.-Gladbach, Höxter og örugglega víðar.....

fimmtudagur, júní 23, 2005

Æðisleg sumarbyrjun

Þá er sumarið komið hér hjá okkur. En hvað ég gleðst yfir því. Sumarbyrjun var 21.júní sem er miklu seinna hér en heima á Íslandi og það hefur verið svo heitt og sólríkt síðan þá. Of heitt fyrir suma, það væri nú líka nóg að vera um og yfir 25 stig en við höfum víst lítið um veðráttuna að segja.

Það var mjög gaman hjá Svölu sl. laugardag, kærar þakkir enn og aftur. Inga Marta verður með næsta boð, sem verður í sept. Föst dagsetning er ekki komin enn. Fer eftir fríum og heimsóknum og öðru.

Ég er byrjuð í sultugerð. Við erum með rifsber hér úti í garði og ég geri bæði rifsberja sultu þar sem ég sía saftið í gegnum bleyju og svo geri ég líka með berjunum í. Ég er ekki frá því að mér finnist skemmtilegri sultan með berjunum í. Þá tekur maður berin af stönglinum og sýður þau svo bara eins og bláber og svo í krukku.
Mér finnst líka gaman að gera jarðaberja sultu, þá set ég vanillu aroma útí, það er svo geggjað gott á bragðið. (Best eru jarðaberin sem maður tínir sjálfur á akrinum) Ég mæli með þessu. Einnig er gott að blanda saman kirsjuberjum og rifsberjum (með berjum) og búa til sultu úr því. Við erum með kirsuber líka í garðinum. Hvernig sultu gerið þið?

Hafið það gott og njótið sumarsins
ykkar
Helga

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home